Results

2 mílna (3.2 km) Tjarnarhlaup 2005

Tjarnarhlaup 6 Desember

Many records were broken in this last run of the year before Christmasvacation ....

It was a most joyful run in the last Pondrace of the year at the 6th of Desember. Many records were broken and the spirit among the runners and all the helpers was in “seven heaven” as we say here in Iceland.

Seven runners participated and like most of the time it was Andres Ramon who won the race. He improved the time from his previous run for about 32 seconds. So we can say that Andres is the winner of the Pondrace for the year 2005, since he has almost always won when he has participated in that year.

The next three runners did all make personal records in the Pondrace. Guys like Runar Pall who improved his best time for about 7 seconds and for the first time did run in less that 13 minutes in the Pondrace. Then it was Hartman who improved his time for about 10 seconds but his best time in the Poundrace was 14:05 so it was his first time when he ran under 14 minutes. Least but not last it was Kristbjörg who improved her previous time for about 1 minute and 40 seconds! That was a marvelous improvement, and for that we happily and joyfully give her the credit “the greatest improver of the evening”.

The last in the race were the three heroes Upajukta, Brynjar and Víðir who all will most definitely improve their time next year. Since this was the last Poundrace of the year, we decided to have a small celebration where we ate pizza, drink coke and ate all kinds of sweeties which everybody enjoyed a lot.

Notice that you can see closest to the camera on the right side Runar Jensson who passed by in Colombia at the 31th of Desember. He will be sadly missed by everybody in the center and we know that he will be running a lot in heaven. This run is dedicated to him.
Men´s finals:

  1. Andrés 12:15
  2. Rúnar Páll 12:53
  3. Hartmann 13:55
  4. Upajukta 15:11
  5. Brynjar 15:35
  6. Víðir 16:51

Women´s finals:

  1. Kristbjörg 14:51

Tjarnarhlaup 29 November

 
 


  There was a good turnout at the Tjarnarhlaup race on 29th of November, but in all there were 5 runners who participated. It was breathtaking to say the least when we saw that Andrés Ramón and Rúnar Páll were going to run after a long break. But they each had a very good reason for their long break. Rúnar was running in the World Harmony Run in Europe since September and Andrés has been busy with his music studies.

Rúnar and Andrés are both in excellent physical shape and it was, therefore, not a suprise to see them battle for the first place.  In the end, Andrés won convincingly.
 
The third place belonged to Hartmann, which was a very good personal result for him, but last week he achieved a personal record unfortunately.  This time he was only slightly below his new record. It is not easy to make progress every week and we have to have in mind that the philosophy of Sri Chinmoy teaches us that it is best to get progress slowly and steadily.

The competition over the fourth place was most exciting. Víðir and Upajukta fought hard over not ending in the fifth and last place. Víðir was ahead for most of the time, but in the end Upajukta managed to steal the fourth place. Víðir said that stomach pain was the main reason for his slow finish. We humbly acccept Víðir's excuse as all excuse that he makes

But the man of the evening was Ágúst Örn who brought two pizzas for the hungry runners. Everybody praised Ágúst a lot for his generosity

Male result:
  1. Andrés 12:47
  2. Rúnar Páll 13:12
  3. Hartmann 14:21
  4. Upajukta 15:24
  5. Víðir 15:40
 

Tjarnarhlaup 22. nóvember


Það sem af er þessum vetri þá hafa þrír hlauparar verið hvað duglegastir að taka þátt í Self Transcendence Tjarnarhlaupinu en þetta eru þeir Upajukta, Víðir og Hartmann.   Þeir kappar hafa mætt í næstum öll hlaup og hefur þá ekki skipt máli þótt glerhálka hafi verið yfir öllu eða beljandi norðangarri, það hefur ekkert stoppað þessi heljarmenni.

Í síðasta hlaupi þá sigraði Hartmann mjög örugglega á sínum besta tíma frá upphafi og óskum við honum til hamingju með það.  Hartmann hefur stöðugt verið að sækja í sig veðrið eftir því sem líður lengra á veturinn og virðist hann vera alveg óháður veðri og aðstæðum og gefur sig allan í hlaupin.  Þess má svo geta að Hartmann er einnig mikill júdókappi og ættu menn því að forðast það að lenda í átökum við hann að óþörfu.
 
Nú Upajukta varð svo annar þó tíminn hjá honum hafi ekki verið uppá marga fiska þá megum við ekki gleyma því að hann verður að teljast með þeim al hörðustu í hlaupunum og lætur ekki nokkur aukakíló draga úr sér kjarkinn.

Síðast en alls ekki sístur var svo verslunarstjórinn hann Víðir.  Víðir setti nú engin met í þetta skipti heldur notaði tímann og virti fyrir sér endurnar á svona í skammdegis myrkrinu.

Úrslit karlaflokki:

  1. Hartmann 14:05
  2. Upajukta 16:05
  3. Víðir 18:10


 

Tjarnarhlaup 15. nóvember

seint koma sumir en koma þó..


Það leit allt út fyrir að Upajukta yrði eini keppandinn í Tjarnarhlaupinu þriðjudaginn 15. nóvember og hugsað hann sér gott til glóðarinna og hugðist sigra hlaupið örugglega, en rétt fyrir hlaup þá mættu Kristbjörg og íslandsvinurinn Hubert til leiks og voru því sigurvonir Upajukta fyrir bí.

 



Það var hinn viðkunnalegi austurríkismaður og íslandsvinur hann Hubert sem sigraði örugglega og bætti tíma sinn um rúma hálfa mínútu frá því fyrir tveim vikum þegar hann keppti síðast.  Þetta er afar glæsilegur árangur því það er ekki hægt að segja að aðstæður fari batnandi núna eftir því sem við förum lengra inní veturinn og er greinilegt að hann fer eftir heimspeki Sri Chinmoy en hann talar einmitt um að menn geti alltaf bætt sig.. 
Það hefði verið gaman að sjá Hubert bæta sig enn frekar á næstu vikum en það verður víst ekki af því þar sem hann er nú alfarinn til síns heimalands.



Einsog áður hefur komið fram þá sá Upajukta fram á langþráðan sigur en sá draumur varð að engu þegar Hubert mætti á svæðið.  Upjukta hljóp þó á ágætis tíma og má alveg vera stoltur af frammistöðu sinni.

Kristbjörg sigraði svo kvennaflokkinn örugglega, en hún hefur sigrað í öllum þeim hlaupum sem hún hefur tekið þátt í enda hefur hún einatt verið í eini keppandinn í þeim flokki.  Hún var aðeins 7 sekúndum frá sínum besta tíma sem hún setti í hlaupinu 25. október.

Úrslit karlaflokki:

  1. Hubert 13:27
  2. Upajukta 15:37


Úrslit kvennaflokki:

  1. Kristbjörg 16:38

Snatak wins 2 mile race

Snatak wins 2 mile race

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Snatak Matthíasson wins the Self-transcendence 2 mile race on August 10 confidently












 

 


















 


More photos here!

Icelandic version


Only one week after his epic victory in the Jökulsá Race, Snatak Matthíasson reaffirmed his top position within the Icelandic Sri Chinmoy Marathon Team with a confident victory in the Self-transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, August 10.

Snatak ran at a time of 10:47 and was three and a half minute ahead of second-place Upajukta Ágústsson.

Because of the superb running weather, sunny and still, the runners were inspired to give their all in the race.

While the runners may have been tired upon reaching the goal, they were soon refreshed by the post-race fruit-feast, which has been an integral part of the Sri Chinmoy Marathon Team races from the beginning.

The Self-transcendence Tjarnarhlaup race is, as mentioned before, 2 miles (3,2 km) and consists of two loops around Tjörnin, the pond which is located by the City Hall in downtown Reykjavík.  This is both a flat and a beautiful course.  This race was the first 2 mile race that we have held for some time, but the next race will be held on Tuesday August 17 at 18:30 and begins by the City Hall.  After that there will be a break in the races until September.  All news about upcoming races will be posted on this web.

Results:

1.Snatak Matthíasson 10:47
2.Upajukta Ágústsson 14:12
3.Rúnar Páll Gígja 15:44
4.Selma Olsen 9:30 (finished 1 mile)

 Kindly view more photos here







Tjarnarhlaup 26. júlí

Þrjú persónuleg met litu dagsins ljós








Skoðið myndir
Veiw pictures


Fimm keppendur mættu til leiks í Tjarnarhlaupinu síðasta þriðjudag og þrír af þeim settu persónuleg met!  Er því óhætt að segja að mikill bætingaandi hafi svifið yfir vötnum þetta kyngimagnaða þriðjudagskvöld.

Fyrstan skal nefna Andrés Ramon sem kom fyrstu í mark á tímanum 11:09 og er þetta ekki bara besti tími hans í Tjarnarhlaupinu heldur er þetta hans besti tími í 2. mílna hlaupi á hans langa hlaupaferli!  Óskum við honum því til hamingju með þennan árangur og nú er næsta skref að hlaupa á undir 11 mínútum.

Nú næstan skal nefna Rúnar Pál sem í síðustu viku bætti sitt persónulega met um 4 sekúndur en hann gerði sér lítið fyrir og bætti núna metið um 13 sekúndur!  Rúnar hefur smá saman verið að komast í betra form á síðustu vikum enda er mikið keppnisskap í peyjanum og leggur sig yfirleitt allan í hlaupin.

 Svo var það hann Ganagne sjálfur sem þrátt fyrir að hafa komið síðastur í mark að þá hljóp hann á sínum besta tíma í Tjarnarhlaupinu frá upphafi! Enda er aðalatriðið að keppa við sjálfan sig einsog Sri Chinmoy talar um og skiptir þá ekki máli í hvaða sæti maður lendir.
Ganagane hefur verið þekktari fyrir það að komast í mark á skriðþunganum en svo virðist sem hann sé að ná góðum tökum að þeirri tækni og verður gaman að fylgjast með í framtíðinni hvort hann nær ennþá betri tökum á að nýta þyngdarkraftinn til að bæta tímann sinn.

 Svo má auðvitað ekki gleyma þeim Víði og Þorsteini sem urðu í 3. og 4. sæti en þorsteinn var lengi vel þriðji í hlaupinu en Víði náði að læða sér framúr á lokasprettinum.

Úrslit:
  1. Andrés 11:09
  2. Rúnar Páll 13:01
  3. Víðir 15:59
  4. Þorsteinn 16:04
  5. Ganagane 16:15

Tjarnarhlaup 19 July







Skoðið myndir View pictures

After having been busy running the World Harmony Run around Iceland for the last two weeks, five determined runners showed up to the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday.

Rúnar Páll really took the bull by the horns and improved on his best time ever. His improvement: 4 seconds. At first it seemed like Rúnar was going to break 13 minutes, as he ran the first mile in 6:15! However, he slowed down, somewhat, during the second mile. Nevertheless, Rúnar will most assuredly take to heart Sri Chinmoy's philosophy that "slow and steady wins the race" and make further improvements in the future.

Suren came second, and has always come second in the Tjarnarhlaup races of 2005. At the same time that Rúnar Páll is improving, Suren's time has stabilised, and it seems obvious that Suren will have to practice if he is to seriously challenge Rúnar.

Third was Upajukta who finally managed to beat Víðir. Víðir has finished ahead of Upajukta in most races in this year, but this time Upajukta managed to tactically outsmart him.

Last place was taken by Ganagane, and this is a place he has become accustomed to.

Results:
  1. Rúnar Páll 13:14 (6:15)
  2. Suren 13:35 (6:36)
  3. Upajukta 15:07 (7:46)
  4. Víðir 15:32 (7:35)
  5. Ganagane 16:33 (8:13)

Tjarnarhlaup 19. júlí








Skoðið myndir
Veiw pictures


Eftir að hafa verið uppteknir við að hlaupa World Harmony hlaupið í kringum ísland síðustu tvær vikur mættu fimm hlauparar til leiks og voru staðráðnir í því að gefa ekkert eftir í Self Trancendence 2 mílna hlaupinu 19. júlí síðastliðinn.

Rúnar Páll gerði sér lítið fyrir og bætti sinn besta tíma frá upphafi um 4 sekúndur. Í fyrstu leit allt út fyrir að Rúnar næði að hlaupa undir 13 mínútum því tíminn hjá honum eftir fyrri hring var 6:15!  Það tóks þó ekki í þetta skipti en góðir hlutir gerast hægt einsog maðurinn sagði og er það líka heimspeki sem Sri Chinmoy leggur mikið uppúr.

Suren varð svo annar og hefur hann lent í öðru sæti í öllum þeim hlaupum sem hann hefur keppt í á þessu ári.  Virðist líka sem Rúnar Páll sé að stinga hann af og þykir það því nokkuð ljóst að Suren verður að stunda miklar æfingar ef hann ætlar að halda í við Rúnar.

Upajukta náði svo loks að vera á undan Víði en þeir hafa verið að berjast grimmt í síðustu hlaupum og hefur Víðir ávallt haft betur.  En í þessu hlaupi náði Upajukta að taka hann á sálfræðinni einsog hann komst sjálfur að orði.

Ganagane rak svo lestina en hann hefur oftar en ekki mátt sætta sig við það hlutskipti uppá síðkastið.

Úrslit:
  1. Rúnar Páll 13:14 (6:15)
  2. Suren 13:35 (6:36)
  3. Upajukta 15:07 (7:46)
  4. Víðir 15:32 (7:35)
  5. Ganagane 16:33 (8:13)

Tjarnarhlaup 14. júní







Fleiri myndir   More photos

Þáttökumetsjöfnun var í Tjarnarhlaupinu 14. júní síðastliðinn.  Mættu 8 galvaskir hlauparar til leiks
og voru menn léttir í lund og tilbúnir að gefa allt í hlaupið. 

Snatak mætti aftur eftir langt hlé og gerði sér lítið fyrir og sigraði örugglega, þrátt fyrir að þrátt fyrir að hafa ekki stundað reglulegar æfingar í langan tíma svo vitað sé..

Rúnar Páll varð að sætta sig við annað sætið og var aðeins einni sekúndu frá sínum besta tíma og er greinilegt að æfingabúðirnar í Frakklandi eru farnar að skila sér.  Fylgdi Rúnar Snatak eftir fyrst um sinn en varð svo að gefa eftir.

Ágúst Örn varð svo þriðji og bætti tímann sinn um 3 sekúndur frá síðustu viku.  Virðist Ágúst ætla að taka þetta á þolinmæðinni að bæta tímann sinn en Sri Chinmoy talar einmitt mikið um að þolinmæði sé gulls ígildi.

Þorsteinn veitti Ágústi harða keppni en var að sætta sig við fjórða sætið og bætti hann tímann sinn um  27 sekúnur og hefur hann verið að sýna góða takta í upphafi síns hlaupaferils.

Víðir sigldi svo öruggur í fimmta sætið  eftir að hafa tekið sér frí vikuna áður.  Var tími hans 15:22 sem er 3 sekúndu bæting frá því hann keppti síðast.

Upajukta og Davíð urðu svo í sjötta og sjöunda sæti.
Hafi þeir verið að bæta sig jafnt og þétt síðustu vikur
og má ætla að þeir fari að sækja í sig veðrið áður en langt um líður.

Áttundi og síðastur en allsekki sístur var Ganagane, en heyrst hefur að hann sé farinn að stunda miklar æfingar síðustu vikur og er því aldrei að vita nema hann fari að blanda sér í baráttuna um efstu sæti fyrr en varir.

Í lokin var svo slegið á létta strengi og fengu menn tækifæri til að gefa öndunum og öðrum fuglategundum brauð að narta í.


Úrslit(millitími eftir 1 mílu innan sviga):
  1. Snatak 11:44 (5:57)
  2. Rúnar Páll 13:19 (6:14)
  3. Ágúst Örn 14:35 (6:55)
  4. Þorsteinn 14:45 (7:06)
  5. Víðir 15:22 (7:28)
  6. Upajukta 15:32 (7:50)
  7. Davíð 15:54 (7:41)
  8. Ganagane 17:24 (8:23)






Tjarnarhlaup 12 July





Last Tuesday, July 12, was a quiet day for the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race - the 24th Tjarnarhlaup race so far this year. Only two participants took part in the race, running slowly as befitted the day, thus finishing far away from record times.

Of course, there is a natural explanation for all of this. The runners of the Sri Chinmoy Marathon Team have been busy for the last two weeks running in the great World Harmony Run around Iceland. And it so happened, that last Tuesday, all runners except the two participants were running somewhere in Ólafsfjörður fjord.

The Self-Transcendence Tjarnarhlaup participants, Ágúst and Víðir, were, furthermore, tired after having run in the World Harmony Run in last week and, correctly, decided to take it easy this time. What remains is the fact that they went through the effort of actually showing up and participating.

Results (1-mile split time shown in brackets):
  1. Ágúst 14:30 (7:08)
  2. Víðir 16:23 (7:46)

Tjarnarhlaup 12. júlí

Tveir hlaupa rólegt Tjarnarhlaup 12. júlí





Það var rólegt yfir öllu þriðjudaginn síðasta, 12. júlí, er 24. Self-Transcendence Tjarnarhlaup þessa árs fór fram.  Aðeins tveir þátttakendur mættu til leiks og hlupu þar að auki frekar rólega og voru langt frá því að setja ný met.

Á þessu er vitanlega eðlileg skýring.  Hlauparar Sri Chinmoy maraþonliðsins hafa verið uppteknir við það síðustu tvær vikur að hlaupa hið mikla World Harmony Vináttuhlaup hringinn í kringum Ísland.  Að þessu sinni voru allir hlaupararnir, utan þessir tveir sem tóku þátt í Tjarnarhlaupinu, staddir einhvers staðar á Ólafsfirði um það leyti sem Tjarnarhlaupið fór fram og voru því löglega afsakaðir.

Þeir Ágúst og Víðir, hlaupararnir sem eftir voru í bænum, voru aukinheldur þreyttir eftir að hafa hlaupið í Vináttuhlaupinu í síðustu viku og fóru sér því engu óðslega.  En þeir tóku a.m.k. þátt og ber að virða það við þá.

Úrslit:
  1. Ágúst 14:30 (7:08)
  2. Víðir 16:23 (7:46)

Tjarnarhlaup 5 July







Only three runners participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, July 5. This unususally low number is easily explained as many regular runners were busy running the Iceland World Harmony Run.

Andrés Ramón achieved an easy victory in the time of 11:55 and is slowly returning to his old form after a virtual rest of two months. We have been hearing rumors that Andrés has been running up to 30 km a day. It is only a question of when he will set a new personal record, for he has taken to heart Sri Chinmoy's philosophy of self-transcendence.

Second was Suren in the time of 13:35. Suren has been exploring the role of a runner in the Tjarnarhlaup races of late, which is rather unusual for him, for he has attended nearly every race and almost always as cameraman and sometimes timekeeper as well.

Andrés's friend, Raúl, came third in the time of 13:57 - not bad, considering this was his first Tjarnarhlaup race. Raúl kept up with Suren for most of the race, and only gave in during the last few hundred metres. Thus, Raúl should be a runner to watch for in the coming races.

Results (1-mile split time shown in brackets):
  1. Andrés 11:5 (5:55)
  2. Suren 13:35 (6:53)
  3. Raúl 13:57 (6:54)


Tjarnarhlaup 5. júlí

Aðeins þrír hlauparar mættu til leiks í Self trancendence tjarnarhlaupið 5. júlií.  Það á sér þó sýnar eðlilegur skýringar þar sem margir hlauparar voru að tala þátt í Alþjóðlega vináttu hlaupinu eða World harmony run.

Andrés Ramon sigraði örugglega á tímanum 11:55 og er hann smá saman að komast í sitt besta form eftir tveggja mánaða hvíld.  Hafa borist sögusagnir um að Andrés sé að hlaupa allt að 30km á dag og er því ekki spurning hvort heldur hvenær setur persónulegt met.

Annar varð svo Suren á 13:35.  Suren hefur verið að láta sjá sig sem þáttakandi í tjarnarhlaupunum uppá síðkastið en hann hefur frekar verið þekktur fyrir að vera maðurinn á bakvið myndavélina og einnig sem tímavörður.



Raúl varð svo þriðji á tímanum 13:57 en hann er vinur Andrésar og var að keppa í fyrsta sinn.   Hann sýndi mikla keppnishörku og náði að fylgja Suren framan af en varð svo að gefa eftir á loka sprettinum.  Það verður gaman að fylgjast með Raúl í framtíðinni því hann virðist vera efni í ágætis hlaupara.


Úrslit (millitími eftir 1 mílu innan sviga):

  1. Andrés 11:5 (5:55)
  2. Suren 13:35 (6:53)
  3. Raúl 13:57 (6:54)

 

 

 

 


 

 

 

 

Tjarnarhlaup 28 June







None of the participants of the Self-Transcendence Tjarnarhlaup 2 mile race on June 28 managed to actually transcend their personal best. It must be said that the weather wasn't quite as we would have wanted it, either. The biggest story of the run was the participation of Upajukta and Ganagane; the two of them have been appearing with increasing frequency of late.

Andrés Ramón was first in the time of 12:37, an easy victory for him. Andrés is slowly getting back in his former record-breaking shape, and has just recommenced training after taking a break in the aftermath of the 6 day race, which he ran in New York in early May.

Ágúst Örn finished in second place at the time of 14:41, and has, by now, nearly monopolised the second place.

Davíð came third in the time of 16:02, which is his second best time in the year 2005, but still over 2 minutes slower than his best time ever, which he set last year. Davíð has proclaimed that he will do anything in his power to reach and transcend his personal record, and is very inspired about Sri Chinmoy's words about self-transcendence over competition.

Upajukta and Ganagane came fourth and fifth, respectively, and were more concerned about actually finishing the race, than to set new records. Nevertheless, it must be said that they managed to run the second lap in a faster time than the first lap - a rare occurence for them!

Results (1-mile split time shown in brackets):
  1. Andrés 12:37 (6:14)
  2. Ágúst 14:41 (7:15)
  3. Davíð 16:02 (7:50)
  4. Upajukta 16:54 (8:31)
  5. Ganagane 18:49 (9:38)

Tjarnarhlaup 28. júní







Eitthvað var lítið um bætingar í síðatsta self trancendence tjarnarhlaupinu þann 28. júní enda var veðrið ekki einsog menn hefðu kosið.  Það bar þó helst til tíðinda að reynsluboltarnir Upajukta og Ganagane voru mættir til leiks og sýndu að þeir hafa fáu gleymt.

Andrés Ramon kom fyrstur á 12:37 og var þetta öruggur sigur.  Andrés er smá saman að komast í fyrra form  því hann hefur tekið sér hvíld frá æfingum eftir að hafa hlaupið 6 daga hlaupið í byrjun maí.

Annar var Ágúst Örn  á 14:41 og geta menn nánast bókað Ágúst í annað sæti fyrirfram enda hefur hann  einokað það síðustu mánuði.

Davíð varð svo þriðji á 16:02 sem er næstbesti tími hans á þessu ári en heilum 2. mínútum frá hans besta tíma sem hann setti á síðasta ári.  Davíð segist ætla að leggja allt í sölurnar til að bæta þann tíma enda talar Sri Chinmoy um að maður eigi fyrst og fremst að keppa við sjálfan sig heldur en aðra.

Fóstbræðurnir Upajukta og Ganagane urðu svo í 4. og 5. sæti og voru þeir meira að einbeita sér að því að klára hlaupið heldur en að setja met.  Þess má þó geta að þeir hlupu seinni hringinn hraðar en þann fyrri og verður það að teljast  einstakur áfangur hjá þeim.




Úrslit (millitími eftir 1 mílu innan sviga):
  1. Andrés 12:37 (6:14)
  2. Ágúst 14:41 (7:15)
  3. Davíð 16:02 (7:50)
  4. Upajukta 16:54 (8:31)
  5. Ganagane 18:49 (9:38)






Tjarnarhlaup 21 June









After a good turnout during the last few weeks and a record turnout last week, it came as a bit of a shock to see only three participants in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race on June 21.

Suren was back after a long absence and won in the time of 13:46. Ágúst put up a hard competition, staying ahead for over half of the race, but Suren, showing the well-masked competitor in himself, went ahead just before the halfway point of the second lap.

Thus, Ágúst came second, a familiar position for him. He was only 2 seconds away from his all time best.

Víðir was last at the time of 15:45, a time which hardly compares to the times of Suren and Ágúst, but then again, Víðir is a big man whose weight hardly compares to the short and skinny first two. Víðir is thus still quite a bit off his record time, but he is not known to give up, as this is one of the many advices of Sri Chinmoy that Víðir has really taken to heart. So, we may yet see a new personal record from him.

Finally, let us not forget to mention Upajukta, who came and photographed with his new mobile phone camera, with all his well-known artistry, and Davíð, who acted as a timekeeper. None complained about his performance (or should I say, none dared complain...?)

Results (1-mile split time shown in brackets):
  1. Suren 13:46(6:41)
  2. Ágúst 14:11(6:37)
  3. Víðir 15:45(7:34)


Tjarnarhlaup 21. júní

Aðeins þrír hlauparar mættu til leiks.









Eftir góða þátttöku síðustu vikur og met þátttöku í síðustu viku þá mættu aðeins þrír keppendur til leiks í Tjarnarhlaupinu 21. Júní síðastliðinn.

Suren sem mætti aftur eftir langa hvíld gerði sér lítið fyrir og sigraði glæsilega á tímanum 13:46.  Ágúst veitti honum harða keppni framan af og þurfti Suren að hafa töluvert fyrir sigrinum en hann fór fram úr Ágústi á endasprettinum og sýndi hversu mikill keppnismaður hann er.

Ágúst Örn varð svo í öðru sæti enda hefur það loðað við Ágúst að eigna sér annað sætið á síðustu vikum.  Ágúst hljóp á tímanum 14:11 og er það aðeins 2 sekúndum frá hans besta tíma .  Bíða menn nú spenntir að sjá hvað Ágúst gerir í næsta hlaupi og aldrei að vita nema nýtt met verði sett.

Víðir rak svo lestina á tímanum 15:45 enda er hann ekki að keppa í sama þyngdarflokki og Suren og Ágúst. Er þetta nokkuð frá hans besta tíma en undirritaður veit fyrir víst að Víðir  gefst aldrei upp enda leggur Sri chinmoy mikið uppúr því að menn gefist aldrei upp.

Svo má ekki gleyma Upajukta sem mætti með nýja myndavélasímann sinn og tók nokkrar myndir af sinni alkunnu snilld og Davíð tímaverði sem sá til þess að hlaupið færi vel fram

Úrslit (millitími innan sviga):
  1. Suren 13:46(6:41)
  2. Ágúst 14:11(6:37)
  3. Víðir 15:45(7:34)






Tjarnarhlaup 14 June







Fleiri myndir   More photos

The participation record was equalled in the Self-Transcendence Tjarnarhlaup race last Tuesday, 14 June, when eight runners showed up, ready to do their best.

Snatak returned to the Tjarnarhlaup races after a long vacation and won an easy victory despite not having trained regularly for a long time...as far as we know.

Thus, Rúnar Páll had to accept second place, despite being only once second away from his best time and it is obvious that the full force of his French training is starting to kick in. Rúnar followed Snatak hard to begin with, but Snatak's speed was too much for Rúnar to maintain.

Ágúst Örn came third, improving his time from last week by three seconds. Ágúst seems not to be in too much of a hurry towards setting a new personal record, no doubt keeping in mind Sri Chinmoy's words that "slow and steady wins the race."

Þorsteinn put Ágúst to the test, but had to accept fourth place nevertheless. Þorsteinn ran 27 seconds faster than last week, which was his first Tjarnarhlaup race ever and one of his first races overall. Thus, we hope we can expect a lot from him in the future.

Víðir steered safely to fifth place, after having taken a day off last week. His time was 15:22 which is 3 seconds better than in his last appearance.

Upajukta and Davíð came fifth and sixth, respectively.
Both of them have been showing constant improvement in the last few weeks, and we can only expect that, before long, they will make serious attempts at their personal bests.

Last, but definately not least, was Ganagane. We have heard rumors that he has been training intensely for the last few weeks. Therefore, one shouldn't be too surprised to see him join the ranks of the top runners soon.

After the end of the race, the runners got a chance to chat and socialise, whilst feeding the ducks, as well as other fowls, of Reykjavík Tjörnin pond.

Results(1-mile split time shown in brackets):
  1. Snatak 11:44 (5:57)
  2. Rúnar Páll 13:19 (6:14)
  3. Ágúst Örn 14:35 (6:55)
  4. Þorsteinn 14:45 (7:06)
  5. Víðir 15:22 (7:28)
  6. Upajukta 15:32 (7:50)
  7. Davíð 15:54 (7:41)
  8. Ganagane 17:24 (8:23)

Tjarnarhlaup 7 June







Fleiri myndir   More photos

Five runners showed up at the Self-Transcendence Tjarnarhlaup race on June 7 to pit their prowess against each other.

Rúnar Páll came again, after a few weeks' vacation, which he spent in France, undergoing serious running training. Rúnar didn't quite reap the harvest of his French training today, as he finished a bit off from his best. Nevertheless, it is only a question of when it starts to kick in, or as Sri Chinmoy explains: "Slow and steady wins the race."

Ágúst Örn came second, and he has come to claim second place as his private and personal belonging of late. Ágúst was, as Rúnar was, a bit off his best, but we expect him also to improve in the near future.

Third was Þorsteinn, participating for the first time. Þorsteinn had a strong start and ran neck-to-neck with Ágúst in the beginning, but lost his drive in the end.

Upajukta came forth, improving his time from his last race for over a minute. Upajukta seems to be starting to reach his former best, since before his appendectomy.

Fifth and last was Davíð, who seems to have become a subscriber to last place of lat. Nevertheless, he did manage to improve his time from last week's race for 45 seconds, which, incidentally, is also his personal best this year. Thus, it seems that his constant training is starting to tell.

Halfway through the race Ganagane made a welcome, if unexpected appearance, and ran with Upajukta, providing much-needed moral support.

Results (1-mile split time in brackets):
  1. Rúnar Páll 13:40 (6:31)
  2. Ágúst Örn 14:38 (7:18)
  3. Þorsteinn 15:12 (7:18)
  4. Upajukta 16:12 (8:00)
  5. Davíð 16:30 (8:06)


Tjarnarhlaup 7. júní







Fleiri myndir   More photos

Fimm fræknir hlauparar mættu í tjarnarhlaupið 7. júní síðastliðinn og öttu kappi hver við annan. 

Rúnar Páll mætti aftur eftir nokkra vikna hlé  eftir að hafa verið í æfingabúðum í frakklandi undanfarið.  Ekki virðast æfingarnar þo vera farnar að skila sér því Rúnar náði ekki að bæta sinn besta tíma, en náði þó þokkalegum árangri.

Ágúst Örn varð svo í öðru sæti sem hann virðist vera farinn að eigna sér, hann var þó nokkuð frá sínu besta en undirritaður hefur óbilandi trú á Ágústi og
gerir ekki ráð fyrir öðru en hann nái að bæta sinna besta tíma á næstu vikum.

Þriðji var svo Þorsteinn en hann var að keppa í fyrsta sinn og kom sterkur inn og veitti Ágústi harða keppni framan af en varð svo að gefa eftir.

Upajukta varð svo fjórði og bætti tíma sinn frá því síðast um rúma mínútu,  og virðir Upajukta vera að ná fyrri styrk og er að verða nokkuð léttur á fæti eftir að hafa komið illa undan vetri.

Fimmti og síðastur varð svo Davíð sem er orðinn fastur áskrifandi að síðasta sætinu, en hann bætti þó tíma sinn frá því síðast um rúma hálfa mínútu og var þetta auk þess hans besti tími á þessu ári.  Virðast því þrotlausar æfingar eitthvað vera farnar að skila sér.

Ganagane lét svo sjá sig þegar hlaupið var hálfnað og hljóp með upajukta síðari hringinn og mátti heyra hvatningar ópin um gjörvalla vatnsmýrina.


Úrslit (millitími eftir 1 mílu innan sviga):
  1. Rúnar Páll 13:40 (6:31)
  2. Ágúst Örn 14:38 (7:18)
  3. Þorsteinn 15:12 (7:18)
  4. Upajukta 16:12 (8:00)
  5. Davíð 16:30 (8:06)






Tjarnarhlaup May 31







Fleiri myndir   More photos

After many new personal records in the last few weeks, the absence of such records came as a surprise in the Self-Transcendence Tjarnarhlaup race on May 31.  It seems as though the runners have exhausted their supply of improvement for the moment, but that's okay, we're sure that records will start dropping soon.  At any rate, Sri Chinmoy has advised runners, as well as all those striving for self-transcendence, to set their goal just a little higher than their believed capacity, or just a little lower.  This time the runners seemed to have set their goals in the just a little lower category.

Furthermore, runners such as Andrés Ramón, who came first in the time of 11:57, had every reason to perform just below peak performance, as this was his first race after completing this year's annual 6 day race, held in  New York by the International Sri Chinmoy Marathon Team. This is, after all, a run where participants run up to 20 hours a day! A heroic race and a tale for another day.

Ágúst Örn came second at the time of 14:15, a mere 6 seconds away from his record 14:09, which he set on April 26. Understandably, Ágúst has every intention of breaking this record - soon - so watch for him in the coming races!.

Víðir came third at the time of 15:25, which is 23 seconds away from his record, which he set the week before. It will be interesting to see whether Víðir manages to break his record in the coming races, as he has been untiring in his declaration of that.

Last but not least was Davíð at 17:15. This is considerably far away from his best ever, 14:00 set in the race on September 14 last year. Davíð himself consider this a bad performance and has vowed to train to get back in shape.

Results:
  1. Andrés 11:57
  2. Ágúst Örn 14:15
  3. Víðir 15:25
  4. Davíð 17:15






Tjarnarhlaup 31. maí







Fleiri myndir   More photos

Eftir miklar bætingar hjá hlaupurum síðustu vikur þá voru engin met sett í Tjarnarhlaupinu þann 31. maí, enda verða menn að eiga eitthvað inni fyrir framtíðina því það er alltaf hætta að menn brenni út ef bætingarnar verða of miklar.

Fyrstur af hlaupurunum var Andrés Ramon á tímanum 11:57, en hann var að keppa í fyrsta sktipti eftir að hafa hlaupið í 6 daga hlaupinu sem er haldið árlega í New york af Sri Chinmoy maraþon liðinu, en þar eru menn að hlaupa jafnvel 20 tíma á dag!   En það er reyndar önnur saga.

Annar var svo Ágúst Örn á 14:15,  og var hann aðeins 2 sekúndum frá meti sínu sem er 14:13.  Má því búast við að Ágúst leggi sig allann fram við að bæta metið í næsta hlaupi. 

Þriðji varð svo Víðir á 15:25 og er það 23 sekúndum frá meti hans sem hann setti vikuna áður.  Verður spennandi að fylgjast með Víði í framtíðinni en hann hefur verið með miklar yfirlísingar um að bæta sig.

Síðastur og ekki sístur var Davíð á 17:15.  Er þetta töluvert frá hans besta tíma sem er 14:00 sett 14. september á síðasta ári.  Verður þetta að teljast afar slakur árangur hjá Davíð og þykir nokkuð ljóst að hann verður að stunda stífar æfingar til að ná fyrra formi.


Úrslit:
  1. Andrés 11:57
  2. Ágúst Örn 14:15
  3. Víðir 15:25
  4. Davíð 17:15






Víðir did it

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Víðir set a long-awaited for personal record in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race, Tuesday, May 24







Íslenska         More photos   Fleiri myndir

After having been close to doing so last week, and even closer the week before, Víðir finally managed to set a new personal record in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race on May 24.

It could have been anticipated that Víðir would improve on his year's best, 16:07 - set on March 8 - sooner or later.  Víðir, however, went much further, and, in the end, he had not only set a new year's best, but had also improved on his all-time best, 15:52, which had stood virtually unchallanged since October 12 last year.  In fact, Víðir improved this record by 50 seconds, making his new personal best 15:02.  Congratulations, Víðir!  You can read more about Víðir's road to the record here.

Víðir's success took himself quite by surprise.  However, this is yet another example of how everything is possible so long as you have the will to do so, a fact that Sri Chinmoy has stressed in his running philosophy.

Upajukta also ran, and is slowly getting back to shape.  He now ran at 17:15, which is almost a minute better than last week.

Results:
  1. Víðir 15:02
  2. Upajukta 17:15









Víði tókst það

Víðir Sigurðsson setti langþráð persónulegt met í Tjarnarhlaupi, þriðjudag 24. maí







English      Fleiri myndir   More photos

Eftir að hafa verið nálægt því í síðustu viku og enn nær því í þarsíðustu viku, tókst Víði Sigurðssyni loks að setja nýtt persónulegt met í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi þriðjudaginn 24. maí.

Það mátti búast við því að ársmetið hans Víðis, 16:07, sem hann setti 8. mars síðastliðinn, félli fyrr eða síðar, sem það og gerði.  En Víðir lét ekki staðar numið við ársmetið heldur setti hann einnig persónulegt met.  Gamla metið, 15:52, hefur staðið óhaggað síðan 12. október á síðasta ári, en Víðir átti ekki í nokkrum erfiðleikum með að bæta það og skildu að lokum 50 sekúndur nýja metið og gamla metið að.  Nýja metið er því 15:02.  Til hamingju með glæsilegt nýtt met, Víðir!  Hægt er að lesa meira um vegferð Víðis að nýju meti hér.

Þessi árangur kom Víði sjálfum mest á óvart, en þetta er enn eitt dæmið um það að "allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi", en þetta viðhorf leikur einmitt stórt hlutverk í hlaupaheimspeki Sri Chinmoys.

Upajukta er síðan smám saman að komast í betra form; hann hljóp nú á 17:15, sem er tæpri mínútu betur en í síðustu viku.

Úrslit:
  1. Víðir 15:02
  2. Upajukta 17:15






A hair's breadth

A hair's breadth

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Two ran the Self-Transcendence Tjarnarhlaup race, Tuesday, May 17.







Íslenska     More photos   Fleiri myndir

Víðir Sigurðsson was only a hair’s breadth away from setting a new personal record for this year in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, May 17.

Víðir, who maintained a good pace for the first mile, seemed to have a decent shot at a new record as he came onto the final 200 metre straight stretch.  Unfortunately, his sprint-finish failed him somewhat, leaving Víðir with a time 6 seconds off his year’s best, 16:07, set on March 8.

Although this, of course, is extremely annoying – especially when taken into account that Víðir was even closer to the record last week, when he ran at 16:09 - Víðir would be wise to take to heart Sri Chinmoy’s encouraging statement that failure is just an experience.  At any rate, Víðir gets another shot at the record next week, when we will see if he manages to follow in the footsteps of Rúnar Páll who set a new record after two infuriatingly close but unsuccessful attempts.  You can read further about Rúnar’s odyssey here.

Upajukta, however, has not yet found his form, which, partly, explains his, somewhat, lacklustre time.

Results (1-mile split time shown in brackets):
  1. Víðir Sigurðsson 16:13 (7:54)
  2. Upajukta Ágústsson 18:00 (8:14)



Hársbreidd

Tveir hlupu Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaup, þriðjudag 17. maí.







English      Fleiri myndir   More photos

Aðeins hársbreidd munaði að Víði Sigurðssyni tækist að setja nýtt persónulegt ársmet í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi, þriðjudaginn 17. maí.

Víðir, sem hljóp fyrri hringinn á góðum tíma, virtist eiga ágæta möguleika á metbætingu er hann kom inn á beina kaflann síðustu 200 metrana.  Hann náði þó ekki upp þeim krafti sem til þurfti og mátti sætta sig við að verða 6 sekúndum frá metinu, sem er 16:07, sett 8. mars.  Þetta er í annð sinn á jafn mörgum vikum sem Víðir er nálægt nýju meti, en í síðustu viku var hann aðeins 2 sekúndum frá metinu.

Spælandi, en, eins og máltækið segir, það kemur dagur eftir þennan dag, og allt er reynsla, eins og Sri Chinmoy hefur sagt.  Víðir fær að minnsta kosti nýtt tækifæri í næstu viku og þá kemur í ljós hvort honum tekst að leika sama leik og Rúnar Páll, sem setti nýtt met eftir að hafa verið nálægt því tvisvar í röð.  Það er hægt að lesa allt um hetjulega göngu Rúnars að nýju meti hér.

Af Upajukta er það að segja að hann hefur enn ekki náð sínu fyrra formi og verður tími hans að skoðast í því ljósi.


Úrslit (millitími eftir 1 mílu innan sviga):
  1. Víðir 16:13 (7:54)
  2. Upajukta 18:00 (8:14)





Tjarnarhlaup 12. september

Það var mikið gleði og hamingja hjá mönnum þegar fyrsta tjarnarhlaupið fór fram eftir nokkurt hlé.  Menn hafa beðið óþreyjufullir í allt sumar eftir því að fá að keppa og var því búist við mörgum keppendum að þessu sinni.

Það fór þó á annan veg því aðeins þrír hlauparar mættu til leiks, en það voru þeir Rúnar Páll, Andrés Ramon og Upajukta.

upajukta040406.jpg

Þetta var fyrsta Tjarnarhlaupið hjá Rúnari Páli á þessu ári en hann mætti síðast þann 6. desember á síðasta ári, en hann var í sumar að hlaupa í alþjóðlega vináttuhlaupinu í evrópu og er hann því í feiknaformi um þessar mundir.

Það fór líka svo að hann hljóp á sínum besta tjarnarhlaupstíma frá upphafi og óskum við honum til hamingju með það.  Það er bara vonandi að hann haldi sér í sama formi og nái að bæta tímann enn betur.

Það voru svo Andrés og Upajukta sem lentu í öðru og þriðja sæti en þeir komu beint af mjög erfiðri hlaupaæfingu og tóku því lífinu með ró í þetta sinn.

Andrés 210306

Því miður náðust engar myndir af keppendunum því ákveðinn aðili sem hafði lofað að mæta og taka myndir sveik það loforð og þykir okkur það miður.  Í staðin verða gamlar og góðar myndir settar inn and margt eftirminnilegt gerst í þau tvö ár sem Tjarnarhlaupið hefur staðið yfir.

Úrslit:

  1. Rúnar 12:17
  2. Andrés 14:13
  3. Upajukta 14:43

Davíð 140206

Rúnar broke the record

Rúnar broke the record

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Two runners set personal records as the participation equalled this year's best in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race in Reykjavík, May 10











Íslenska         More photos   Fleiri myndir

The Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race on May 10 was most productive.  First of all, the participation record for this year, five participants, which was set on March 1 and equalled on March 8, was again equalled.

Secondly, two personal records were broken.  Rúnar Páll, who finished first in the time of 13:18, broke his all time personal best by 16 seconds. Rúnar's record-breaking was well-deserved as he had been so close to it last week and the week before last week.  And let's bear in mind that this was an old record, set in the race on November 30 last year.  Thus, Rúnar proved that patience overcomes all obstacles, as Sri Chinmoy has stated.  Read a report on Rúnar's record-breaking.

The second record-breaker was Ganagane, but his time of 18:02 was an improvement of over 2 minutes from his previous best for this year, which he set on January 25.  Nevertheless, Ganagane's all time best, 16:21, set on September 21, is still not within reach.

Furthermore, Ágúst Örn and Víðir made good attempts at new records.  Ágúst was 4 seconds off his all time best, 14:09 set on April 26, and Víðir was 2 seconds away from this year's best, 16:07 set on March 8.

Finally, Upajukta is still recuperating and thus his time is nowhere indicative of his real running strenght.

Results (1-mile split time shown in brackets):
  1. Rúnar Páll 13:18 (6:20)
  2. Ágúst Örn 14:13 (6:53)
  3. Víðir 16:09 (7:50)
  4. Ganagane 18:02 (8:36)
  5. Upajukta 19:38 (9:23)

Góð þátttaka

Eitt met féll í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupinu 10. maí, en lengi er búið að bíða eftir því








English            Fleiri myndir    More photos

Góð þáttaka var í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi þriðjudaginn 10. maí.  Fimm hlauparar tóku þátt og jöfnuðu þar með ársmet í þátttöku sem sett var 1. mars og jafnað 8. mars.

En þátttökumetið var ekki eina metið sem féll, því Rúnar Páll sló persónulegt met sitt frá 30. nóvember á síðasta ári.  Rúnar hljóp nú á 13:18, en hafði áður hlaupið best 13:34 þann 30. nóv. eins og áður var sagt.  Rúnar var vel að þessu nýja meti kominn, en hann er búinn að vera nálægt því undanfarnar tvær vikur; í síðustu viku var hann 3 sekúndum frá því og í þarsíðustu viku jafnaði hann metið.  Rúnar sannaði þar með hið fornkveðna að "þolinmæði þrautir vinnur allar", en þetta er einmitt eitt af lykilatriðunum í hlaupaheimspeki Sri Chinmoys.  Til hamingju, Rúnar!  Lesið umfjöllun um met Rúnars.

Annar hlaupari sem sló met er Ganagane, en hann bætti ársmet sitt frá 25. janúar um rúmlega tvær mínútur!  Hann á þó enn tæpar 2 mínútur í allra besta tíma sinn, 16:21, sem kom 21. september.

Ágúst Örn og Víðir gerðu einnig harða hríð að persónulegum metum og voru hársbreidd frá því að ná markmiðum sínum.  Ágúst var 4 sekúndum frá persónulegu meti sínu, 14:09, sem hann setti 26. apríl og Víðir var 2 sekúndum frá ársmeti sínu, 16:07, sem hann setti 8. mars.

Aðrir hlauparar áttu rólegan dag og kenndu æfingaleysis, en það stendur vonandi til bóta.

Úrslit (millitími eftir 1 mílu innan sviga):
  1. Rúnar Páll 13:18 (6:20)
  2. Ágúst Örn 14:13 (6:53)
  3. Víðir 16:09 (7:50)
  4. Ganagane 18:02 (8:36)
  5. Upajukta 19:38 (9:23)

A minor setback

A minor setback

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Three runners participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race in Reykjavík, May 3










Íslenska

More photos
Fleiri myndir


It was through no fault of the weather, this time, that the three runners, who participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race on Tuesday, May 3, were unable to set new records.  The weather was actually not so bad.

However, if your faithful reporter may be so bold to say, it was as some measure of tiredness could be detected in the runners, which in itself is unsurprising, as they have been intensely training recently, and have participated in most of the Tjarnarhlaup races this year.  At any rate, this is the most likely explanation for the absence of records your faithful reporter can come up with, for a new record is set in almost every race.

Rúnar Páll stood first - and he was also closest to breaking a record.  Rúnar finished in the time of 13:37 which is only three seconds away from his record, a record which he set on November 30 and equalled last week.  In fact, it has been almost painful to see Rúnar so nearly break his record for the last two races.  Nonetheless, Rúnar, mindful of Sri Chinmoy's philosophy, is not contemplating giving up.  He fully intends to set a new record next race, and he will take care not to eat shortly before the race.

Ágúst Örn came second in the time of 15:20, which is considerably far away from his personal best, 14:09, which he set last week.  Ágúst has been training a lot for the last few weeks and looked tired.

Last but not least was Víðir in the time of 16:40.  Víðir has not yet been able to seriously challenge his personal best, 15:52, which he set on October 12, and his best time for this year, 16:07, set on March 8, also still stands.

Results:
  1. Rúnar Páll 13:37
  2. Ágúst Örn 15:20
  3. Víðir 16:40
Kindly view more photos here

Bakslag í seglin

Þrír tóku þátt í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi í ágætis veðri þriðjudag 3. maí














English

Fleiri myndir
More photos


Það var ekki veðrinu um að kenna að þeim þremur hlaupurum, sem þátt tóku í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi þriðjudaginn 3. maí, skyldi ekki takast að setja nein met.  Veður var í sjálfu sér ágætt.

Hitt er annað mál að það var engu líkara en nokkurrar þreytu gætti hjá þessum þremur drengjum sem hlupu að þessu sinni, enda hafa þeir stundað stífar æfingar upp á síðkastið og tekið þátt í flestum Tjarnarhlaupum í ár.  Það er að minnsta kosti líklegasta skýringin sem fréttaritari getur fundið á því að ekkert met skuli hafa verið sett að þessu sinni, því annars fellur eitthvað met í nánast hverju einasta hlaupi.

Rúnar Páll var fyrstur í mark - og hann var einnig næst því að slá eigið met.  Rúnar kom í mark á tímanum 13:37 sem er aðeins þremur sekúndum frá meti hans, en þetta met setti hann 30. nóvember og jafnaði í síðustu viku.  Í raun er alveg grátlegt hvað Rúnar er búinn að vera nálægt metbætingu síðustu tvö skiptin.  Rúnar hyggst þó taka mið af boðskap Sri Chinmoys og gefast ekki upp.  Hann ætlar sér að slá metið í næsta hlaupi og þá ætlar hann að passa sig á að fá sér ekki að borða stuttu fyrir hlaup.

Ágúst Örn kom næstur á 15:20, sem er töluvert frá hans besta, 14:09, sem kom í síðustu viku.  Ágúst hefur æft stíft upp á síðkastið og virkaði þreyttur.

Víðir kom síðastur á 16:40.  Víðir hefur enn ekki náð að gera almennilega atlögu að sínum allra besta tíma, 15:52, sem kom 12. október, og auk þess stendur enn met hans fyrir þetta ár, 16:07, en sá tími kom í hlaupinu 8. mars.  Það er vonandi að Víðir finni kraftinn til að bæta sig.

Úrslit:
  1. Rúnar Páll 13:37
  2. Ágúst Örn 15:20
  3. Víðir 16:40
Gjörið svo vel og skoðið fleiri myndir hér

First race after break

First race after break

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

The Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup races recommenced on April 26 with one personal record and the equalling of one personal record









Íslenska

More photos
Fleiri myndir


As readers of this site have doubtlessly noticed, the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup races have been on a break for the last 2 weeks.  The reason is that the members of the Sri Chinmoy Marathon Team Iceland went to New York to attend the start of the World Harmony Run.  Apart from this, the members found time to participate in a 2mile race in New York, and attend an annual celebration in honour of Sri Chinmoy, the founder of the Sri Chinmoy Marathon Team.

The first race after the break was on Tuesday April 26, and it is safe to say that the runners were hungry for the race, for, out of four runners, one set a new personal record and another equalled his personal record.

Rúnar Páll was first to finish, at the time of 13:34.  This is exactly the same time as his best time ever, which came in the race on November 30, and incredibly unlucky, really, that he did not manage to improve on his time.

Ágúst Örn came second at the time of 14:09.  This is an improvement of 9 seconds from his previous best ever, 14:18, which came in the race on March 29.  Ágúst has been training lately with Rúnar Páll, and it has obviously paid off.

Víðir came third at the time of 16:34, which is a bit slower, both than his best ever, 15:52 (October 12) and his best this year, 16:07 (March 8).

Last, but not least, is our hero from New York, Upajukta.  Upajukta experienced, right from the start, some pain, as he recently underwent an appendectomy.  And after heroically walking one mile in the time of 12:13, Upajukta wisely decided that enough is enough, and joined your faithful reporter in the cheer squad.

Results:
  1. Rúnar Páll 13:34
  2. Ágúst Örn 14:09
  3. Víðir 16:34
  4. Upajukta 12:13 (stopped after 1 mile)
Kindly view more photos here

Fyrsta Tjarnarhlaup eftir hlé

Eitt met féll og eitt var jafnað á Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi 26. apríl, fyrsta hlaupinu eftir 2 vikna hlé.



















English

Fleiri myndir
More photos


Eins og lesendur þessarar síðu hafa vafalaust tekið eftir hafa Self-Transcendence 2 mílna hlaupin legið niðri undanfarið.  Ástæðan er sú að Sri Chinmoy maraþonliðið á Íslandi fór í hópferð til New York til að vera við upphaf World Harmony hlaupsins.  Einnig notuðu menn tímann þarna úti til að taka þátt í Self-Transcendence 2 mílna hlaupi og vera viðstaddir árleg hátíðarhöld til heiðurs Sri Chinmoy, stofnanda Sri Chinmoy maraþonliðsins.

Var því ákveðið að Tjarnarhlaup lægju niðri á meðan, eða frá 5. apríl til 26. apríl.

Fyrsta hlaupið eftir hlé var, sem sagt, þriðjudaginn 26. apríl og er óhætt að segja að hlauparar hafi tekið því fagnandi, því af fjórum hlaupurum setti einn persónulegt met og annar jafnaði persónulegt met sitt.

Rúnar Páll kom fyrstur fjórmenninganna í mark á tímanum 13:34.  Þetta er jöfnun á besta tíma hans frá upphafi, sem kom í hlaupinu 30, nóvember, og ótrúleg óheppni raunar að Rúnari skyldi ekki takast að bæta tímann.  En metbæting liggur í loftinu hjá Rúnari.

Ágúst Örn kom annar í mark á tímanum 14:09.  Þetta var, hvorki meira né minna, en bæting um heilar 9 sekúndur frá besta tíma hans áður, 14:18, sem kom í hlaupinu 29. mars.  Ágúst hefur verið að æfa stíft með Rúnari Páli undanfarið og augljóst að það hefur skilað sér.

Víðir kom þriðji í mark á tímanum 16:34, sem nokkru frá bæði besta tíma hans, 15:52 (12. október) og besta tíma hans þetta árið, 16:07 (8. mars).

Síðastan ber að telja hetjuna frá New York, Upajukta.  Upajukta varð strax í byrjun fyrir óþægindum, en hann er enn að jafna sig eftir botnlangauppskurð.  Upajukta lét sig þó ekki muna um það að ganga einn hring, eða eina mílu, og gerði það á tímanum 12:13.  En hann ákvað jafnframt, viturlega, að láta það nægja að sinni.

Úrslit:
  1. Rúnar Páll 13:34
  2. Ágúst Örn 14:09
  3. Víðir 16:34
  4. Upajukta 12:13 (hætti eftir 1 mílu)
Vinsamlegast skoðið fleiri myndir hér

Ágúst ran alone

Ágúst ran alone

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Only one runner participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race in Reykjavík, April 5







Íslenska

More photos here
Fleiri myndir hér


It was a cold and windy Tuesday evening April 5th, when the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race took place.

Thus, it was not altogether surprising that only one runner felt up to the race.  This lone runner, Ágúst Örn, has shown great enthusiasm in the races of late and has participated in six out of the seven last races.

Consequently, Ágúst's best time has greatly improved; this year he has improved his best time from last year by 20 seconds.

Today, however, Ágúst found it understandably hard to come even close to his best time because of the cold and wind and finished at a time of 15:42, which is 1 minute and 24 seconds slower than his best.

Nevertheless, participation in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race is never a waste of time!  For one thing, running experts, such as Sri Chinmoy, have commented that there is great advantage in training under unfavourable circumstances.

Another thing is that simply meeting with the crew and spectators of the Tjarnarhlaup race makes it a worthwhile experience.  The sole spectator of this race was Ágúst's training partner, the one and only Rúnar Páll, who was legally excused from participation as he had just undergone a delicate dental surgery.

Results (1-mile split time shown in brackets):
Ágúst Örn 15:42 (7:36)

Kindly view more pictures here








Ágúst hljóp einn

Aðeins einn tók þátt í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupinu þriðjudaginn 5. apríl







English

Fleiri myndir hér
More pictures here


Það var napurt og hráslagalegt við Tjörnina í Reykjavík þriðjudaginn 5. apríl, en þá fór fram Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupið.

Enda fór svo að aðeins einn hlaupari tók þátt, Ágúst Örn, en hann hefur verið mjög duglegur upp á síðkastið og hefur tekið þátt í sex af síðustu sjö hlaupum.

Vinur Ágústs og hlaupafélagi, hinn eini sanni Rúnar Páll, var reyndar einnig á staðnum, en hann var löglega afsakaður frá hlaupaiðkun að þessu sinni, þar sem hann hafði látið draga úr sér endajaxla fyrr um daginn.  Rúnar var því bara þeim mun duglegri við að gefa öndunum.

Ágúst náði, skiljanlega, ekki góðum tíma við þessar aðstæður, en hann hljóp á 15:42, sem er 1 mínútu og 24 sekúndum frá hans besta.

Hinsvegar er það aldrei til einskis að hlaupa í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupinu.  Það eitt að heilsa upp á starfsmenn og áhorfendur hlaupsins gerir upplifunina þess virði og svo má benda á að ýmsir hlaupaspekingar, þar á meðal Sri Chinmoy, hafa bent á að það er góð æfing að hlaupa við erfiðar aðstæður.

Úrslit (millitími eftir 1 mílu innan sviga):
Ágúst Örn 15:42 (7:36)

Gjörið svo vel og skoðið fleiri myndir hér







Fleiri met

Eitt persónulegt met og eitt ársmet var slegið í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi, 29. mars











English

Skoðið fleiri myndir hér
View more photos here


Það rigndi nokkuð en annars var veðrið gott fyrir hlauparana tvo sem tóku þátt í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupinu þriðjudaginn 29. mars síðastliðinn.

Enda lét árangurinn ekki á sér standa: Rúnar Páll kom fyrri í mark á tímanum 13:48.  Þetta var fyrsta hlaup Rúnars síðan 1. febrúar og hljóp hann á besta tíma sínum í ár, en fyrr átti hann best 14:09, sem kom 25. janúar.

Þetta verður að teljast góð innkoma hjá Rúnari.  Vinnu sinnar vegna hefur hann verið fjarverandi í tæpa tvo mánuði, en tími hans í þessu fyrsta hlaupi eftir hlé er aðeins 14 sekúndum frá allra besta tíma hans, 13:34, sem kom 30. nóvember.  Rúnar verður því að teljast til alls líklegur í næstu hlaupum.

Ágúst gerði hins vegar gott betur en Rúnar, þó hann kæmi á hæla honum í mark, því Ágúst setti nýtt persónulegt met, 14:18.  Tími Ágústs er þriggja sekúndna bæting á fyrra meti, 14:21, sem kom 15. mars, og hefur Ágúst nú þríbætt persónulegt met sitt í marsmánuði, en þessar framfarir hófust í hlaupinu 1. mars er Ágúst hljóp á 14:24 og bætti met sitt frá 7. september um 14 sekúndur.

Segja má að Ágúst sýni nú viðlíka framfarir og Rúnar Páll sem fjórbætti persónulegt met sitt á tímabilinu 12. október-30. nóvember í fyrra.  Reyndar voru framfarir Rúnars stórstökkari í sekúndum talið, en framfarir beggja eiga það þó alla veganna sameiginlegt að vera sprottnar úr hinum hvetjandi orðum Sri Chinmoys um stöðugar eigin framfarir (self-transcendence).

Úrslit:
  1. Rúnar Páll 13:48
  2. Ágúst 14:18

Gjörið svo vel og skoðið fleiri myndir hér

More record-breaking

More record-breaking

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Two new records were set at the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, March 29, in Reykjavík







Íslenska

View more photos here
Skoðið fleiri myndir hér


The weather was optimal, despite the steady, light rain, for the two runners that ventured the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race, last Tuesday, March 29.

Turning these optimal condition to their advantage, both runners set a record. Rúnar Páll came first at a time of 13:48.  Not only was this Rúnar's first run since February 1st, his time was also a personal record for this year, the previous record being 14:09, set on January 25.

Furthermore, Rúnar's time is only 14 seconds away from his absolute best, 13:34, which he set on November 30.  Rúnar must, therefore, be accounted a likely record-breaker in the near future.

Even though he came second to Rúnar, Ágúst's feat must be accounted greater in the sense that Ágúst's time, 14:18, was a new personal best for him.  Ágúst's time now is a three-second improvement over his time on March 15, 14:21, and marks his third improvement in the month of March only.  This series of improvements started on March 1, when Ágúst ran at a time of 14:24, improving his personal best by 14 seconds from September 7.

These improvements of Ágúst are similar to Rúnar's four new records in the period between October 12-November 30 last year.  And although Rúnar's leaps of progress are somewhat greater, measured in seconds, the progress of both runners stems from Sri Chinmoy's same inspirational philosophy of self-transcendence.

Kindly view more photos here

Results:
  1. Rúnar Páll 13:48
  2. Ágúst 14:18

A quiet day

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Two runners participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race, last Tuesday, March 22, in Reykjavík

















Íslenska

 

More photos here.

Fleiri myndir hér.

 

After all the recordbreaking that's been going on in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup races recently, such as on March 1., 8. and 15., the race on last Tuesday, March 22, seemed awfully quiet. Only two runners participated and neither of them managed to set a new personal record - not even a new year's best time.  Usually, however, this would be quite normal, but after all the progress that has been made lately, the fans are starting to expect more.

 

Of the two runners Víðir came first.  This, in fact, could be called a record of sorts, since this is the first time that Víðir gets placed first.  Before this race Víðir had never reached above third place, but third place is an achievement that he reached three times in a row on November 2., 9. and 16.  Víðir's time, 16:36, however, was a bit away from his best times; 29 seconds from his year's best, 16:07, set on March 8 and 44 seconds from his best ever, 15:52, set on October 12.  Víðir will need to run faster if he intends to improve his records.

 

Davíð came second and last.  Davíð has never reached above second place, but has twice before reached second place, on 21. and 28. of September.  In those days, on the other hand, Davíð ran at a considerably faster time.  This time Davíð ran at 17:26, which is 28 seconds away from his year's best, 16:58, which came on March 8 and a big 3 min. and 26 seconds away from his all time best, 14:00, which came on September 14.  Thus, Davíð has his work cut out for him if he intends to improve his records, but, on the other hand, it should be easy enough for him to improve his current time.

 

All in all, these two boys should have every chance of making progress in the races to come, and, as Sri Chinmoy has explained, progress gives joy, even small progress.

 

Kindly view more pictures here

 

Results:

1. Víðir 16:36

2. Davíð 17:26

Rólegur dagur

Tveir tóku þátt í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi þriðjudaginn 22. mars.
















 

 

 

 


English

 

Fleiri myndir hér.

More photos here.

 

Eftir öll metin sem hafa fallið í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupunum undanfarið, bæði í síðustu viku, þarsíðustu viku og þarþarsíðustu viku, var óvenjulega rólegt í hlaupinu 22. mars.  Aðeins tveir tóku þátt og hvorugum tókst að setja nýtt met - ekki einu sinni nýtt ársmet.  Þetta myndi reyndar teljast fullkomlega eðlilegt að öllu jöfnu, en eftir uppganginn undanfarið eru menn farnir að búast við meiru.

 

Hvað um það, Víðir varð í efsta sæti.  Segja má að þetta sé einskonar met, því þetta er í fyrsta sinn sem Víðir lendir í efsta sæti.  Áður átti Víðir best 3. sæti þrjár vikur í röð, 2. nóvember, 9. nóvember og 16. nóvember.  Tími Víðis, 16:36, var hins vegar nokkuð frá hans bestu tímum, 29 sekúndur frá ársmetinu, 16:07, sett í þarsíðustu viku, og 44 sekúndur frá hans allra besta tíma, 15:52, sem kom 12. október.  Víðir verður að herða sig aðeins ef hann ætlar að bæta metin sín.

 

Davíð lenti í öðru og síðasta sætinu.  Davíð hefur aldrei lent ofar en í öðru sæti, en hann hefur tvisvar áður lent þar, 21. og 28. september.  Í þau skipti hljóp Davíð reyndar á talsvert betri tíma.  Nú hljóp hann á 17:26, sem er 28 sekúndum frá ársmetinu, 16:58, sem kom 8. mars og heilum 3 mín. og 26 sekúndum frá sínum allra besta tíma, 14:00, sem kom 14. september.  Davíð á því nokkuð verk fyrir höndum ef hann ætlar að slá metin sín, en á móti kemur að hann ætti að eiga nóg inni fyrir því að bæta tímann sinn.

 

Þegar allt er tekið með í reikninginn þá ættu þessir tveir hlauparar að hafa ágætis möguleika á að setja ný met á næstunni.  Þeir ættu að minnsta kosti að geta bætt núverandi tíma og, eins og Sri Chinmoy hefur bent á, þá eru allar framfarir gleðigjafi, jafnvel þó það séu litlar framfarir.

 

Skoðið fleiri myndir hér

 

Úrslit:

1. Víðir 16:36

2. Davíð 17:26

Recordbreakers only?

Recordbreakers only?

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Two participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, March 15, both of which set a personal record















Íslenska

More pictures here
Fleiri myndir hér


It seems as though the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race has become a club for only those runners in the Sri Chinmoy Marathon Team Iceland who are intent on setting a new personal record.  Last week three out of five runners set a personal record.  This week both runners set a new personal record.

Andrés was the first of those two, finishing at 11:24, which is a new year's best time for him, beating his previous year's best, last week's 12:01, by 37 seconds!  Moreover, this time is only 4 seconds away from Andrés' personal best, 11:20, which came on September 14, and  42 seconds away from the Tjarnarhlaup race record, 10:42, which Snatak set on August 14 (unfortunately, a report from this race is unavailable on the web).  It is your faithful reporter's prophecy that Andrés should not only have every chance of setting a new personal record, but a fair chance of setting a new Tjarnarhlaup race record as the day lengthens in Reykjavík.

It is ironic that Ágúst came last in this race, despite setting a new personal record, 14:21!  This just shows the high level of performance in the Tjarnarhlaup races these days.  Ágúst improved his previous personal best, 14:24 - set on March 1, by 3 seconds.  Ágúst should have every chance of improving his time even further.

It should, therefore, be exciting to watch these two runners in the coming races.

Results (1-mile split time shown in brackets):
  1. Andrés 11:24 (5:34)
  2. Ágúst 14:21 (6:57)
Kindly view more pictures here

Báðir slógu met

Tveir tóku þátt í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi þriðjudaginn 15. mars og settu báðir nýtt persónulegt met



















English

Fleiri myndir hér
More pictures here


Það er engu líkara en að Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupið sé orðið að klúbbi fyrir einungis þá hlaupara í Sri Chinmoy maraþonliðinu sem setja ný persónuleg met.  Í síðustu viku settu þrír af fimm hlaupurum persónulegt met og nú, þriðjudaginn 15. mars, settu báðir hlaupararnir nýtt persónulegt met.

Andrés varð fyrri til að koma í mark og var það á tímanum 11:24.  Þetta er langbesti tími Andrésar í ár, en fyrra ársmet hans var 12:01 sem hann setti í síðustu viku.  Tími hans nú er aukinheldur aðeins 4 sekúndum frá hans allra besta tíma, sem kom 14. september, og nákvæmlega 42 sekúndum frá Tjarnarhlaupsmetinu, 10:42,  sem Snatak setti 14. ágúst (Um það hlaup eru reyndar ekki til rafræn gögn).  Það er spá fréttaritara að með hækkandi sól muni Andrés ekki einasta setja nýtt persónulegt met, heldur gera harða atlögu að Tjarnarhlaupsmetinu.  Verður spennandi að fylgjast með hvernig þeirri rimmu lyktar.

Það er nokkuð fyndið til þess að hugsa að Ágúst kom síðastur í mark og það á sínum besta tíma frá upphafi, 14:21!  Segir þetta nokkuð um það hvað samkeppnin er orðin hörð og frammistaðan góð í Tjarnarhlaupunum.  Ágúst bætti hér sitt fyrra persónulega met um 3 sekúndur og fékk það met aðeins að lifa í 2 vikur, eða síðan 1. mars.

Það verður því spennandi að fylgjast með þessum tveimur hlaupurum og öllum hinum sem hafa verið að bæta sig undanfarið í komandi hlaupum.

Úrslit (millitími eftir 1 mílu innan sviga):
  1. Andrés 11:24 (5:34)
  2. Ágúst 14:21 (6:57)
Gjörið svo vel og skoðið fleiri myndir hér

Relentlessly jogging

Relentlessly jogging

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Four participate in the Self-Transcendence Sunday Fun-run March 13, despite an ill-disposed weather and other obstacles







Íslenska

More pictures here
Fleiri myndir hér


The weather that greeted the four joggers that participated in the Self-Transcendence Sunday Fun-run on March 13 can hardly be called hospitable.  This weather is best described by the Icelandic term "gluggaveður", which literally translates as "window-weather".  Window-weather basically means that although the sun is shining and it looks beautiful outside, it is actually freezing, windy and quite inhospitable.

This, however, is, of course, no obstacle for the joggers of the Sri Chinmoy Marathon Team Iceland, who are emboldened by a Viking spirit.  The names of the four who jogged last Sunday, Ágúst, Pujarini, Suballabha and Viktoría, will doubtlessly be recorded in the annals of heroism.  Add to this that Suballabha neither had the time to put on proper running attire nor running shoes, and still he ran.  What a guy!

As usual, your faithful reporter took some snap shots of the surroundings, which can be viewed here.







Skokkarar skelfast ei neitt

Fjórir skokka Self-Transcendence skemmtiskokk á sunnudegi 13. mars þrátt fyrir leiðindaveður og aðra tálma

English

Fleiri myndir hér
More pictures here



Það var svo sannarlega ekki skemmtilegt veðrið sem tók á móti skokkurunum í Sri Chinmoy maraþonliðinu er þeir lögðu upp í sitt vikulega Self-Transcendence skemmtiskokk á sunnudegi 13. mars síðastliðinn.



Veðrinu er best lýst sem svo að það hafi verið sannkallað gluggaveður - sólin skein og úti var fallegt, en á sama tíma var hitastig vel undir frostmarki auk þess sem Kári lét að sér kveða.

En þeir fjórir hlauparar sem tóku þátt létu það ekki á sig fá, þau Ágúst, Pujarini, Suballabha og Viktoría.  Suballabha var þó sýnu verr settur en hin, því hann hafði ekki tíma til að skipta í almennileg hlaupaföt - hvað þá hlaupaskó.  Hann lét sig þó hafa það að vera með, enda alltaf hressilegt að skokka í Laugardalnum í góðra vina hópi.



Sem fyrr var fréttaritari þessarar síðu með myndavélina á lofti og tók nokkrar myndir af umhverfinu sem hægt er að sjá hér.

 

Making progress

Making progress

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Three new records were set and one record was equalled in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, March 8


















Íslenska

More pictures here
Fleiri myndir hér

There is certainly a lot of progress going on in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup races.  Last week five runners participated, thereby setting a new record attendance for this year.  Last Tuesday, March 8, this record was equalled.  It is worth noting that the same five runners participated both times.

Equalling the participation record, however, seems to pale into insignificance when taken into account that three new records were set.  Last week Andrés ran at 12:27 which was, by far, his best time this year.  Last Tuesday, however, Andrés improved again and this time by 26 seconds, bringing his time down to 12:01!  Andrés is making a lot of progress these days and it will be exciting to see whether he manages to break his 11:20 record from September 14.

Ágúst Örn came second at 14:38.  This is 14 seconds away from his personal best, which was set last week. Despite this small setback, Ágúst has every chance of setting a new personal best in the coming races.

Third place was occupied by Upajukta at 15:22.  This is 11 seconds away from his year's best, 15:11, which came on February 22nd, and quite a bit away from his personal best, which is 14:10 set in the race of September 14.  Nevertheless, this time was an improvement of 6 seconds from last week so we hope he's going in the right direction.

Víðir came fourth at 16:07.  This is Víðir's year's best, but his former year's best, 16:39, came last week (although under questionable circumstances - a situation which is still under investigation).  Víðir is getting closer to his personal best, 15:52, which came a long time ago, or on October 12.  Víðir ought to have a fair chance of setting a new personal best in the coming weeks.

Davíð was fifth at 16:58.  This is a long way away from his personal best, 14:00, set in the race on September 14.  Let us, though, not forget that Davíð just came back to the races after a break of four months and this time is, after all, an improvement of 103 seconds from last week, which was previously his year's best. Sri Chinmoy advocates that "slow and steady wins the race" and yours truly dares to prophesize that it will not be long until Davíð has amassed enough speed from the gravitational pull of his muscular mass to be a real threat to Ágúst and Upajukta.

Results:
  1. Andrés 12:01
  2. Ágúst Örn 14:38
  3. Upajukta 15:22
  4. Víðir 16:07
  5. Davíð 16:58
Kindly view more pictures here
Vinsamlegast skoðið fleiri myndir hér

Allt á uppleið

Þrjú met voru slegin og eitt var jafnað á Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupi þriðjudaginn 8. mars














English

Fleiri myndir hér
More pictures here

Það er óhætt að segja að Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupin hafi verið að sækja í sig veðrið undanfarið.  Í síðustu viku tóku fimm hlauparar þátt, sem er met á þessu ári, og þriðjudaginn síðasta, 8. mars, var þetta met jafnað.  Það er athyglisvert að það voru sömu fimm hlaupararnir sem tóku þátt í bæði skiptin.

En þátttökumetið var ekki eina metið sem hreyfðist á þriðjudaginn.  Í síðustu viku hljóp Andrés á 12:27, sem var langbesti tími hans á þessu ári, og þriðjudaginn síðasta gerði hann sér lítið fyrir og sló það met um heilar 26 sekúndur er hann hljóp á 12:01!  Andrés er á mikilli siglingu þessar vikurnar og nú er bara að sjá hvort hann bæti besta tíma sinn frá upphafi, en það er 11:20 sem kom í hlaupinu 14. september.

Ágúst Örn kom í öðru sæti á 14:38.  Þetta er 14 sekúndum frá hans allra besta tíma, en sá tími kom einmitt í síðustu viku.  Ágúst hefur hinsvegar allar forsendur til að bæta sinn allra besta tíma og verður spennandi að fylgjast með hvort honum tekst það.

Þriðji varð Upajukta á 15:22.  Þetta er 11 sekúndum frá besta tíma hans á þessu ári, 15:11, sem kom 22. febrúar, og nokkuð frá hans allra besta, en það er 14:10 sem kom í hlaupinu 14. september.  Þessi tími var þó bæting um 6 sekúndur frá því í síðustu viku og við vonum að þetta sé allt á réttri leið hjá honum.

Víðir kom fjórði í mark á 16:07.  Þetta er besti tími Víðis á árinu, en fyrr átti hann best 16:39 í síðustu viku.  Víðir nálgast nú sinn allra besta tíma, en hann var 15:52 og kom fyrir löngu síðan, eða 12. október.  Nú er bara að bíða og sjá hvort Víði takist ekki að slá þann tíma.

Fimmti varð Davíð á 16:58.  Þetta er nokkuð langt frá hans allra besta tíma, en sá tími er 14:00 og kom í hlaupinu 14. september.  Við skulum samt ekki gleyma því að Davíð er nýbyrjaður að hlaupa aftur í Self-Transcendence 2 mílna hlaupunum eftir fjögurra mánaða hlé og þessi tími var þó bæting um 103 sekúndur frá því í síðustu viku, en sá tími var besti tími hans á þessu ári.  Sri Chinmoy hefur margoft sagt að best er að bæta sig hægt og bítandi og það er spá fréttaritara að fyrr en varir verði Davíð kominn með ógurlegan skriðþunga og þá mega Ágúst og Upajukta vara sig.

Úrslit:
  1. Andrés 12:01
  2. Ágúst Örn 14:38
  3. Upajukta 15:22
  4. Víðir 16:07
  5. Davíð 16:58
Vinsamlegast skoðið fleiri myndir hér
Kindly view more pictures here

Jogging in the sun

Jogging in the sun

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

The Laugardalur recreational area welcomes the Self-Transcendence Sunday Fun-run with a mild, pre-spring weather, March 6





Íslenska

The weather was sunny and mild during the Self-Transcendence Sunday Fun-run on March 6. The participation was good, four runners, which is equal to the best turnout since we started covering the fun-runs on this site (this former best turnout was on February 20).  Consider also that missing on March 6 were the sisters Selma and Kristbjörg and Rúnar Páll, but the three of them have participated in all the fun-runs that have been covered on this site.  This means that there is easily scope for a bigger turnout.

These three regulars were replaced by three dynamic women; Steinunn, Viktoría and Pujarini.  Suballabha was the only representative of the boys.  He also participated on February 20.

At days like this the Laugardalur recreational area assumes an early spring charm.  Naturally, the point of these Sunday Fun-runs is not just the exercise but also to share a moment with friends in a beautiful environment.  This, of course, is something that Sri Chinmoy tirelessly encourages us to do.  Kindly view some additional photos here.

Sunnudagsskokk 6. mars

Þátttökufjöldi hélst stöðugur í Self-Transcendence skemmtiskokki sunnudaginn 6. mars þrátt fyrir að fastagesti vantaði

English

Self-Transcendence skemmtiskokk sunnudaginn 6. mars var haldið í sól og blíðu.  Ágætis þátttaka var, en fjórir tóku þátt sem er metjöfnun frá því að farið var að fylgjast með skokkinu á þessari síðu (áður tóku fjórir þátt sunnudaginn 20. febrúar).  Þátttakan verður að teljast enn betri í ljósi þess það vantaði systurnar Selmu og Kristbjörgu og Rúnar Pál, en þau þrjú hafa alltaf tekið þátt frá því þessi síða hóf að fylgjast með skokkinu.



Í stað fastagestanna þriggja tóku þrjár kjarnakonur þátt, þær Steinunn, Viktoría og Pujarini.  Suballabha var eini fulltrúi strákanna í hópnum, en hann tók einmitt einnig þátt 20. febrúar.

Á dögum sem þessum skartar Laugardalurinn sínu fegursta.  Hreyfingin er nefnilega ekki einasti tilgangurinn með þessu sunnudagsskokki, heldur líka að njóta góðs félagsskapar í fallegu umhverfi, en Sri Chinmoy hefur margoft bent á og hvatt okkur til að eiga svona stundir saman.  Gjörið svo vel og skoðið fáeinar fleiri myndir sem fréttaritari okkar tók hér.

The sunshine boys

The sunshine boys

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

The sun finally shone in Reykjavík and acted as a catalyst for three new records in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, March 1































Íslenska

The Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race was run in a bright, clear weather last Tuesday, March 1.  It was a bit chilly, perhaps, but not so much as to bother the runners.

These excellent conditions acted as a catalyst for three new Tjarnarhlaup race records.  This, of course, is what we all strife for in the Tjarnarhlaup races, for, as Sri Chinmoy has illustrated, it gives the race a greater sense of value if the runners and organizers compete with themselves and try to improve themselves.

The first record was this year's participation record.  Five runners took part in the race, a number of runners that was last equalled in the last race of last year, November 30.  The absolute record attendance in the Tjarnarhlaup races from the beginning - 8 runners - , however, still stands.  This record was set in September 14 and equalled on October 12.

The two lead runners each set a personal record:
Andrés came first at the time of 12:27, which is his best time this year.  Andrés' previous year's best was 13:10, which came in the run on January 18.  Andrés hasn't run this fast since October 26 when he ran at 12:16.

Second place was Ágúst at the time of 14:24, which is his best time ever.  Congratulations Ágúst!!!  Ágúst's previous personal best was 14:38, which came in the race of September 7.

Third place was Upajukta at the time of 15:28 and trod heavily.

An unexpected fourth finisher was Víðir at the time of 16:39, despite not having started the race.  This is, therefore, a mystery unto us and his time is set in between brackets while the mystery is unravelled.

The final finisher was Davíð, who was more interested in harnessing the gravitational pull of his muscular mass than attaining actual speed.  He finished at his worst ever of 18:41, although it is somewhat mitigating that he has been out of circulation since October 26.

But the end result was that all five runners finished happy and it seems that the Tjarnarhlaup races are looking toward a brighter time with growing sun and happier runners.

Results (1-mile split time shown in brackets):

1.Andrés 12:27 (6:06)
2.Ágúst 14:24 (7:08)
3.Upajukta 15:28 (7:21)
(4.Víðir 16:39 (7:49))
5.Davíð 18:41 (8:43)

Í sólskinsskapi

English



Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupið þriðjudaginn 1. mars var hlaupið í blíðskaparveðri; alveg stillt, bjart og mjög fallegt veður. Það var svolítið kalt en þó ekki þannig að það væri hlaupurunum til trafala. Það var líka mjög gaman að geta haldið hlaupið í bærilegri birtu.

Þessar fínu aðstæður skiluðu sér í ýmsum Tjarnarhlaupsmetum, en eins og áður hefur verið getið, leggur Sri Chinmoy mikið upp úr því að menn keppi við sjálfa sig og bæti sig, enda gefur það hlaupinu enn meira gildi.

Fyrst ber að nefna að skipuleggjendur mótsins settu met, þ.e. nýtt þátttökumet á þessu ári.  Fimm hlauparar tóku þátt og þarf að leita allar götur til síðasta hlaupsins á síðasta ári, 30. nóvember, til að finna jafn góða þátttöku.  En metþátttakan í Tjarnarhlaupunum frá upphafi stendur enn, en það eru átta þátttakendur, sem sett var 14. september og jafnað 12. október.

Tveir fyrstu hlaupararnir settu personuleg met:
Andrés kom fyrstur á 12:27 sem er hans besti tími á árinu.  Áður átti hann best 13:10 á þessu ári, en sá tími kom 18. janúar.  Andrés hefur ekki hlaupið jafn hratt síðan 26. október, en þá hljóp hann á 12:16.

Í öðru sæti varð Ágúst á 14:24 sem er hans besti tími frá upphafi og óskum við honum til hamingju með það!!!  Fyrr átti hann best 14:38 og kom sá tími í hlaupinu 7. september, þannig að þessi framför hans var búin að liggja lengi í loftinu.

Þriðji var Upajukta á 15:28 og voru skref hans þung.



Víðir kom óvænt í fjórða sæti en hann kláraði á 16:39 þrátt fyrir að hafa ekki byrjað hlaupið, og er það okkur enn ráðgáta hvernig þetta atvikaðist. Tími hans er því settur innan sviga meðan málið er í rannsókn.

Restina rak svo Davíð massi sem lagði meira upp úr skriðþunganum en hraðanum. Hann skilaði sér á 18:41 eftir að hafa hlaupið fyrri hring á 8:43.

En allir fimm hlaupararnir komu kátir í mark og er óhætt að segja að Tjarnarhlaupið horfi fram á bjartari tíma með hækkandi sól, enda hugur í mönnum.

Úrslit (millitími eftir 1 mílu innan sviga):



1.Andrés 12:27 (6:06)
2.Ágúst 14:24 (7:08)
3.Upajukta 15:28 (7:21)
(4.Víðir 16:39 (7:49))
5.Davíð 18:41 (8:43)

One foggy evening...

One foggy evening...

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Three runners participate in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race, despite a thick chilling fog, Reykjavík, Tuesday, February 22













More pictures
Fleiri myndir


Íslenska

The members of the Sri Chinmoy Marathon Team Iceland were determined that they wouldn't let the near-cancellation of last week's race happen again, and so three runners showed up for the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, February 22.

The runners weren't stopped by the thick and chilling fog, for, after all, what is fog to such men that are wont to run in ice and snow (and they have never complained!)?

The determination of the runners was quickly transformed into eagerness, but a manifestation of that eagerness could be clearly seen in Upajukta's incredibly fast finish which, literally, ended with a leap.

This leap enabled Upajukta to catch up with Ágúst at the time of 15:11.

Both Upajukta and Ágúst were running at their best time this year.  Upajukta made an improvement of 43 seconds from the race of January 25 and Ágúst improved on his time from February 1 by 27 seconds.  Interestingly, both runners had not run at a faster time since October 12.

Andrés was, as usual, in a category of his own, finishing only 5 seconds away from his best time so far this year (January 18).

Results:
  1. Andrés 13:15
  2. Ágúst 15:11
  3. Upajukta 15:11
Kindly view more pictures here

Margt býr í þokunni

Þrír hlauparar hlupu Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaup á meðan hrímþoku lagði yfir Reykjavík, þriðjudaginn 22. febrúar















Fleiri myndir
More pictures


English

Minnugir álitshnekksins í síðustu viku þegar fréttaritari þessarar síðu tók einn þátt í Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupinu, mættu þrír hlauparar úr Sri Chinmoy maraþonliðinu ákveðnir til leiks þriðjudaginn 22. febrúar og létu ekki smámuni eins og hrímþoku stöðva sig.  Enda var þokan lítil fyrirstaða fyrir kraftakarla sem hafa hlaupið í svelli, meira svelli og fannfergi.

Hlaupararnir virtust frískir, en eitt besta dæmið um það er að Upajukta tók gríðarlegan endasprett og, með því að bókstaflega stökkva yfir endalínuna, náði hann Ágústi á tímanum 15:11.

Þetta var auk þess besti tími þeirra beggja í ár.  Upajukta hljóp 43 sek. betur en það sem hann átti áður best í ár (25. janúar).  Þarf að fara aftur til hlaupsins 12. október til að finna betri tíma (14:11).

Ágúst hljóp 27 sek. betur en það sem hann átti áður best í ár (1. febrúar) og, rétt eins og hjá Upajukta, þarf að fara aftur til hlaupsins 12. október til að finna betri tíma (14:47).

Andrés var, að venju, í sérflokki í hlaupinu og var ekki nema 5 sekúndum frá besta tíma sínum í ár (18. janúar).

Úrslit:
  1. Andrés 13:15
  2. Ágúst 15:11
  3. Upajukta 15:11
Skoðið fleiri myndir hér

Cameraman to the rescue

Cameraman to the rescue

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Cameraman Suren tries out his legs and saves the 2 mile Self-Transcendence Tjarnarhlaup race from cancellation, Tuesday, February 15


Íslenska

It was with some hope that your faithful reporter and cameraman, Suren, arrived at the scene of the 2 mile Self-Transcendence Tjarnarhlaup race last Tuesday, February 15.

After all, the weather had calmed down and the ice had thawed out, making the running course somewhat less of a herculean task than last week.

It came, therefore, as a great surprise to see that no runners had showed up for the race and frantic calls to well-known runners, none of which were met with an answer, assured the reporter that this attendance, or rather more non-attendance, would indeed be the case.
After a brief, yet inspiring, phone conversation with Ganagane, the organizer of the races, who was home with a cold, your faithful reporter saw only one fit course of action: He buckled up his utility bag, slung his tripod over his shoulders and walked the 2 mile Self-Transcendence race course, having set three race records by the time he finished: 1) Slowest finisher ever, 2) Fastest finish for a walker (none has ever attempted to walk the whole course so far), 3) Fastest finish for a walker with a backpack and a tripod (a record which is not likely to be broken in the foreseeable future).

The Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup races have been going on without interruption since September 7 (of course there was a break from November 30 to January 18, but this was a well-planned-out-before break) and your reporter was not about to let that tradition be broken; not on his shift.  Also, this was a most auspicious twentieth edition of the run.

This situation also brought to mind stories of Sri Chinmoy about spiritual men who have given lectures even in the face of non-attendance.

In some way, their action of service and your reporter's action of creating news for this site, somehow seemed to strike a chord.

The indespensible post-race photo was taken by a very kind English tourist who wished to remain anonymous.

Result (1-mile split time shown in brackets):
  1. Suren 35:00 (17:00)

Fréttaritari bjargar heiðrinum

Til þess að bjarga Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupinu frá þeirri hneisu að falla niður gekk fréttaritarinn Suren 2 mílur, þriðjudag 15. febrúar

English

Það var með nokkurri von í brjósti sem Suren, fréttaritari og myndatökumaður þessarar síðu, mætti til leiks á Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupið þriðjudagskvöldið síðasta, 15. febrúar.

Það kom honum því óþægilega á óvart að þar skyldi enginn hlaupari bíða hans - og það þrátt fyrir að veðrið hefði skánað og gert hefði mikla þíðu frá því í erfiða hlaupinu vikuna áður.

Nú voru góð ráð dýr.  Hringingar í nokkra þekkta hlaupara sem ekki var svarað, sannfærði fréttaritarann um að þessi þátttaka, eða öllu heldur þetta þátttökuleysi, yrði ekki umflúin.

Eftir stutt hvetjandi símtal við kvefaðan, rúmliggjandi skipuleggjanda hlaupanna, Ganagane, festi fréttaritarinn bakpokann á, skellti þrífætinum á öxlina og gekk 2 mílna Tjarnarhlaupshringinn og setti um leið þrjú met: 1) Versti tími, 2) Besti tími gangandi þátttakanda (enginn annar hefur gengið allar 2 mílurnar), 3) Besti tími gangandi þátttakanda með bakpoka og þrífót (met sem ekki er líklegt að verði slegið í bráð).

Self-Transcendence Tjarnarhlaupin hafa haldið göngu sinni sleitulaust síðan 7. september (það var reyndar gert hlé á þeim frá 30. nóvember til 18. janúar, en það var með vilja gert) og fréttaritarinn gat alls ekki hugsað sér að vera viðstaddur þegar hlaupið félli niður í fyrsta sinn, þaðan af síður þar sem þetta var tuttugasta hlaupið.

Auk þess rifjuðust upp sögur Sri Chinmoys af andlegum mönnum sem fluttu fyrirlestra sína jafnvel þegar enginn mætti.  Boðskapurinn með þessum sögum og hlaupinu 15. febrúar er á einhvern hátt sá sami - að þegar málstaðurinn er góður er þess virði að framkvæma hlutina, veita þjónustu sína, jafnvel þó að enginn mæti.

Hin ómissandi eftirhlaupsmynd var tekin af geðugum enskum ferðamanni sem lét ekki nafns síns getið.

Úrslit (millitími eftir 1 mílu innan sviga):

  1. Suren 35:00 (17:00)

Overcoming extreme adversities

Overcoming extreme adversities

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Two runners overcame extreme weather conditions to finish the 2 mile Self-Transcendence Tjarnarhlaup race in Reykjavík, Tuesday, February 8














Icelandic version

It was almost as cold as on November 16 and even more slippery than on November 30.  Combined, these adverse weather conditions made the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, February 8, one the hardest races so far.

Only two runners braved the circumstances, Upajukta and Andrés.  Both came through, albeit not uneventfully as Andrés suffered a fall on one of the several slippery spots.  Yet, after this disaster, he simply picked himself up and finished the race, mindful of the words of Team founder Sri Chinmoy that one should never give up.

Bad as though it first seemed, this experience left Andrés physically intact and with a story of heroic effort to his credit.

But, of course, both runners must be considered heroes to participate and finish.

Needless to say, no records were broken this time.

Results:
  1. Andrés 13:46
  2. Upajukta 16:30

The Return of Ágúst

The Return of Ágúst

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Two runners participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, February 1.










Icelandic version

One of the two runners that participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, February 1, was Ágúst Örn, who was running his first Tjarnarhlaup race this year.

It was a joyous occasion to have Ágúst back to the Tjarnarhlaup races, for he brings with him a gentleness which is simply contagious.  Ágúst has taken to heart the philosophy of Sri Chinmoy that one should not concentrate solely on the results, but participate and show one's oneness.  Ágúst is, therefore, always very welcome to the races.

Ágúst's time was 15:38, which is six seconds better than in his last race on November 30th, but still an exact minute slower than his best time, which came on September 7th.

Thus Ágúst did not present much of a challenge for Rúnar Páll, despite Rúnar's rather lacklustre performance.  Rúnar, who wasn't feeling in peak physical condition, ran seven seconds slower than last week, and hasn't been able to break 14 minutes this year, although that is where he truly belongs.

Results:
  1. Rúnar Páll 14:16
  2. Ágúst Örn 15:38

Ágúst snýr aftur

Aðeins tveir hlauparar tóku þátt í Self-Transcendence Tjarnarhlaupi þriðjudaginn 1. febrúar

nglish version

Annar af tveimur hlaupurum sem hlupu Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaup þriðjudaginn 1. febrúar var Ágúst Örn, en þetta var fyrsta Tjarnarhlaup hans í ár.

Voru það fagnaðarfundir að fá Ágúst aftur í hlaupin, en ljúfmennska hans smitar ávallt út frá sér.  Ágúst fer eftir þeirri heimspeki Sri Chinmoys að einblína ekki á úrslitin heldur vera með og sýna einingu sína í verki.  Ágúst er því ávallt afar velkominn í Self-Transcendence 2 mílna hlaupin.

Tími Ágústs var 15:38, sem er sex sekúndum betri en í síðasta hlaupi hans, 30. nóvember, en nákvæmlega heilli mínútu verri en besti tími hans, sem kom 7. september.

Ágúst gat því ekki veitt Rúnari Páli mikla keppni, en Rúnar fann fyrir eymslum í baki og var sjö sekúndum hægari en fyrir viku.  Rúnari hefur enn ekki tekist að komast undir 14 mínútur í ár, en þar á hann svo sannarlega heima.

Úrslit:

  1. Rúnar Páll 14:16
  2. Ágúst Örn 15:38

     

Jólin sitja í

Annað Self-Transcendence Tjarnarhlaup ársins 2005 fór fram þriðjudaginn síðasta, 25. janúar. Þrír hlauparar tóku þátt







English version

Þrátt fyrir miklar leysingar síðustu daga er enn nokkuð svell í Hljómskálagarðinum.  Þessu fengu hlaupararnir þrír sem hlupu Self-Transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupið síðasta þriðjudag, 25. janúar, að kynnast.

Óvenju slæmir tímar litu dagsins ljós að þessu sinni og voru hlaupararnir á einu máli um að ekki væri einungis svellinu um að kenna, heldur spilaði óheilbrigt jólafæði inn í.

Það má raunar ekki gleyma því í allri þessari umræðu að hér er um hlaup í janúar að ræða - öðrum af tveimur verstu vetrarmánuðum ársins - og að aðstæður eru sannarlega ekki alltaf eins og best er á kosið.

En það einkennir liðsmenn Sri Chinmoy maraþonliðsins, sem innblásnir eru af hvatningu og kenningum Sri Chinmoys, að þeir neita að leita afsökunar í ytri aðstæðum, heldur kafa djúpt inn á við, finna þann styrk sem þar býr og reyna sitt besta að bæta sig, þrátt fyrir allt.

Það kæmi því ekki algjörlega á óvart ef einhverjum hlauparanum tækist að setja persónulegt met í janúar eða febrúar - þó að það sé vart líklegt.

Ein athyglisverð staðreynd: Tími Rúnars Páls var nákvæmlega sá sami og í hlaupinu 2. nóvember.

Úrslit:
  1. Rúnar Páll 14:09
  2. Upajukta 15:54
  3. Ganagane 20:18


Here we go again...

Here we go again...

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

After a break of over one and a half months, the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup races recommenced last Tuesday, January 18







Icelandic version

As the readers of this site know best, the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup races have been enjoying a long Christmas vacation, the last race having been run on November 30.

It was, therefore, with much enthusiasm that the races recommenced last Tuesday, January 18.

Three runners took part in this first race of the new year.  Understandably, no records were set this time, due to adverse conditions; snow, slippery surfaces, an unhealthy Christmas diet etc.  The runners are undeterred, however, and Rúnar Páll hinted that he was not going to stand down during these bitterest months of winter, but would try his utmost to improve on his personal best!  After all, it is Sri Chinmoy's philosophy that one should never give up.

Results:
  1. Andrés Ramón 13:10
  2. Rúnar Páll Gígja 14:45
  3. Upajukta Ágústsson 16:35




Revenge of the Christmas diet

Revenge of the Christmas diet

page created by admin last modified 2007-06-27 05:37 AM

Three runners participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, January 25















Icelandic version

Despite all the thawing out that's been going on for the last few days, the three runners who participated in the Self-Transcendence 2 mile Tjarnarhlaup race last Tuesday, January 25, found themselves faced with slippery surfaces here and there; especially in the Hljómskáli garden.

The times were unusually poor this time and it seems that the slippery surfaces cannot take all the blame.  Rather, it seems like this is the result of an unhealthy Christmas diet on the runners' part.

However, let us not forget that the present races are being held in January, one of the two cruelest months of the year (the other being February).

Nevertheless, fans of the 2 mile Tjarnarhlaup races have come to expect the runners (their heroes) to perform against all odds, to improve their times despite the winter weather.  And it is true that one of the principles of the runners of the Sri Chinmoy Marathon Team, who are deeply affected by the teachings of team founder Sri Chinmoy, is not to give up but to go deep within, harness the strength that therein lies and try and bring that strength to the surface to do good deeds.

Therefore, it would not be entirely surprising if one of the runners managed to set a personal record next week, although we would do well to curb our expectations for the time being.

And, on a curious note: Rúnar Páll's time was exactly the same as in the run on November 2nd.

Results:
  1. Rúnar Páll 14:09
  2. Upajukta 15:54
  3. Ganagane 20:18

Tjarnarhlaup hafin á ný

Self-transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupin hófust á nýjan leik, þriðjudaginn síðastliðinn, 18. janúar. Þrír tóku þátt og óðu í gegnum skaflana

English version

Eins og lesendur þessara síða vita manna best hafa Self-transcendence 2 mílna Tjarnarhlaupin verið í eins og hálfsmánaðar jólafríi, eða allar götur síðan þriðjudaginn 30. nóvember.

Það var því mörgum kærkomið þegar hlaupin hófust á nýjan leik, þriðjudaginn síðasta, 18. janúar.



Þrír hlauparar tóku þátt í þessu fyrsta hlaupi og létu fannfergi og svell ekki á sig fá.  Það voru reyndar engin met slegin að þessu sinni, enda varla hægt miðað við aðstæður.  Samt var engan bilbug á hlaupurunum að finna og Rúnar Páll lét í það skína að hann ætlaði ekki að gefast upp fyrir vetrinum, heldur reyna að bæta tíma sinn í komandi hlaupum, enda er það heimspeki Sri Chinmoys að menn skyldu aldrei leggja árar í bát.

Úrslit:

  1. Andrés Ramón 13:10
  2. Rúnar Páll Gígja 14:45
  3. Upajukta Ágústsson 16:35